Skip Þorbjarnar hf. halda áfram að gera það gott. Gnúpur kom úr mettúr fyrr í vikunni og í dag kom Hrafn GK 111 einnig heim úr mettúr þegar hann landaði 620 tonnum af blönduðum afla. Verðmæti aflans var kr. 244 milljónir og er það mesta verðmæti sem skipið hefur komið með úr einni veiðiferð en túrinn var 30 dagar.