Björk Bergsdóttir hefur verið ráðin í hlutastarf sem framkvæmdastjóri GG. Hennar starfssvið verður yfirumsjón með skála, styrktarmál, kynningarmál og auglýsingar, hópabókanir og önnur umsýsla tengd golfklúbbnum. Með þessu opnar skálinn fyrr á morgnana virka daga, þ.e. kl. 10.
Björk er félögum vel kunnug þar sem hún hefur verið félagi í klúbbnum í mörg ár. Björk hefur nýlega lokið prófi í viðskiptafræði og bæði nám hennar og starfsreynsla mun án efa nýtast Golfklúbbi Grindavíkur við markaðssetningu á honum.
Stjórn GG væntir mikils af starfi Bjarkar og viljum við bjóða hana velkomna til starfa að því er segir á heimasíðu GG.