Opinn fundur verður hjá unglingaráði körfuknattleiksdeildar UMFG, mánudaginn 27. júní nk. kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í aðstöðu UMFG við Grunnskólann. Starfið verður kynnt og farið yfir markmið þess.
Fundurinn er öllum opinn og unglingaráðið vonast eftir að sem flestir mæti til að fá fleiri viðhorf og ábendingar.
Unglingaráð