Í morgun sjósettu vísandamenn frá rannsóknarstofnunni PLOCAN á Spáni lítinn ómannaðan kafbát við Grindavík sem kallast Webb Glider. Kafbáturinn mun sigla til Kanaríeyja á næstu 4 til 5 mánuðum og mæla ýmsa eiginleika hafsins á leiðinni. Félagar í Björgunarsveitinni Þorbirni sigldu með kafbátinni um 10 mílur suður fyrir Grindavík þar sem kafbáturinn var settur í sjóinn.
Vísindamennirnir eru á Íslandi í boði Teledyne Gavia í Kópavogi (www.gavia.is). Webb Glider er vara frá Teledyne Webb. Fylgst verður með þessari siglingu á næstu mánuðum í samstarfi við Teledyne Webb og Rutgers University í New Jersey í Bandaríkjunum. Webb Glider sigldi frá New Jersey til Spánar árið 2010 en ferðin tók 7 mánuði.
Formlegheitin voru slík í morgun og fulltrúi Tollgæslunnar mætti á svæðið til að tolla kafbátinn!