Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar auglýsir hér umhverfisskýrslu vegna tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2000 - 2020 skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
Breyting á skipulagsáætluninni er gerð í þeim tilgangi að gera ráð fyrir grunnum niðurdælingarholum vegna förgunar affallsvökva frá Svartsengisvirkjun og Bláa lóninu. Nánar til getið fela breytingar í sér að:
Iðnaðarsvæði er afmarkað vestan við verslunar- og þjónustusvæði Bláa lónsins
Skilgreind er lagnaleið meðfram Bláalónsvegi að iðnaðarsvæðinu
Umhverfisskýrslan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62 og á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við umhverfisskýrsluna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 5. ágúst 2011.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar eða í tölvupósti robert@grindavik.is.
Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
Tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi (PDF)