Ný borhola undir Gunnuhver

  • Fréttir
  • 22. júní 2011

Ný 2500 metra löng borhola hefur verið boruð undir Gunnuhver á Reykjanesi. Það var borinn Óðinn, sem er í eigu Jarðborana, sem boraði holuna fyrir HS Orku hf.

 

Að sögn Alberts Albertssonar hjá HS Orku hf. hefst nú 2-3 mánaða tilraunaferli í holunni til að sjá hverju hún afkastar. Meðal annars var framkvæmd sprenging í holunni til að örva hana og aftur verður sprengt í borholunni í ágúst nk. Þá verður holan kæld og hituð, allt eftir kúnstarinnar reglum.

Það sem er sérstakt við þessa holu er að hún hallar talsvert en stefna hennar er undir Gunnuhver og þaðan að Skálafellsgíg.

Kjarnar voru teknir úr holunni til rannsóknar í hinu svokallaða djúpborunarverkefni en kostnaður við þá rannsókn er greiddur af alþjóðlega vísindasamfélaginu.

Önnur borhola, sem kallast 17B, var boruð frá sama borteig og fór sú hola undir Reykjanesvita og áleiðis út undir sjó. Komið var fyrir vísindatækjum djúpt í þeirri holu. Þeim tækjum er meðal annars ætlað að grípa vökva í grjót til frekari rannsóknar síðar. Þessi rannsókn er jafnframt kostuð af alþjóðlega vísindasamfélaginu, að því er segir í frétt Víkurfrétta um málið.

Mynd: Víkurfréttir.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!