Vignir og Hreimur skemmta í Jónsmessugöngu á laugardagskvöldiđ - Sćtaferđir frá BSÍ og Reykjanesbć

  • Fréttir
  • 21. júní 2011

Laugardagskvöldið 25. júní býður Bláa Lónið og Grindavíkurbær upp á hina árlegu Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn. Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hér er um að ræða skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Lagt verður af stað gangandi frá sundlaug Grindavíkur kl. 20:30 og er áætlað að ferðin taki um þrjár klukkustundir. Hópstjóri verður með í för. Allir eru á eigin ábyrgð.

Vignir og Hreimur (vinir Sjonna) munu skemmta með söng og spili við varðeld á fjallinu og einnig í Bláa Lóninu þar sem gangan endar.

Enginn þátttökukostnaður er í gönguna en þátttakendur greiða aðgang í Bláa lónið. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig í Vinaklúbb Bláa Lónsins og fá þá sérkjör í Bláa Lónið: Aðeins 1950 kr aðgangseyri. Skráning í Vinaklúbbinn er ókeypis.

Bláa Lónið er opið óvenju lengi þetta kvöld eða til klukkan 24:00.

Kynnisferðir verða með sætaferðir til Grindavíkur frá BSÍ klukkan 19:30 og SBK frá Reykjanesbæ kl. 20:00. Sætaferðir frá Bláa Lóninu verða til Grindavíkur kl. 00:30 og Reykjanesbæjar og Reykjavíkur kl. 01:00.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál