Stelpurnar í 8 liđa úrslit eftir stórsigur á Fjölni

  • Fréttir
  • 20. júní 2011

Grindavíkurstelpur tryggðu sér sæti í 8 liða úrslitum bikarsins með því að skella Fjölni í Gravarvogi 5-0. Óhætt er að segja að Grindavík hafi haft algjöra yfirburði í leiknum því liðið brenndi auk þess af aragrúa marktækifæra. Fyrsti sigur stúlknanna í sumar staðreynd og vonandi að hann gefi þeim aukið sjálfstraust í þeim deildarleikjum sem framundan eru. Shaneka Gordon skoraði þrennu fyrir Grindavík og þær Saga Kjærbeck Finnbogadóttir og Dernelle L. Marscall sitt markið hvor.

„Þetta var langþráður sigur. Það var gott að vinna loksins. Það var virkilega gaman. Allt liðið lagði sig virkilega mikið fram og við stóðum okkur bara loksins," sagði Anna Þórunn Guðmundsdóttir fyrirliði Grindavíkur við fótbolta.net.

Sjónvarpsviðtal við hana má sjá hér.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir