Söngvakeppni barna er fastur liður á 17. júní í Grindavík. Að þessu sinni voru átta atriði á dagskrá, þar af eitt hópatriði en allt voru þetta stúlkur, strákarnir eitthvað feimnir að taka lagið. Söngatriðin voru hvert öðru betra og m.a. var sunginn einn frumsaminn texti um 17. júní í Grindavík. Myndband frá öllum söngatriðunum má sjá hér að neðan.
Dómnefndinni var því nokkur vandi á höndum en svo fór að Elín Eyjólfsdóttir varð í 3. sæti, Viktoría Steindórsdóttir í 2. sæti en sigurvegari var Eva Rut Tryggvadóttir sem er aðeins 5 ára en hún söng lagið Mýsla, sýsla, tassla, tússla, án undirspils. Eva Rut á ættir að rekja til Grindavíkur en langamma hennar er Birna Bjarnadóttir sem lengi starfaði sem kirkjuvörður. Að sögn móður Evu Rutar heillaðist stelpan af myndbandi af móður sinni syngja á 17. júní í Grindavík og var sú stutta staðráðin í því að gera slíkt hið sama, með þessum glæsilega árangri.
Verðlaunin voru:
3. sæti: Pizzuveisla fyrir 2 á Mamma mía.
2. sæti: Gjafabréf í Bókabúð Grindavíkur.
1. sæti: Pizzuveisla fyrir 4 á Mamma mía.
Mynd: Verðlaunahafarnir Viktoría, Eva Rut og Elín.