Í tilefni þjóðhátíðardagsins verður Kvenfélag Grindavíkur með kaffisölu í Gula húsinu en aðal hátíðarsvæðið er á grasvellinum þar fyrir framan. Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna við hátíðarhöldin og skella sér í kaffi til kvenfélagsins og styrkja gott málefni í leiðinni.