Kaffihúsið Bryggjan sýnir þessa dagana stórmerkilega heimildamynd frá Grindavík sem Ólafur Rúnar Þorvarðarson gerði á árunum 1983 til 1991. Í myndinni eru fjögur viðtöl við heiðursmennina Árna í Teigi, Magnús á Hrauni, Gauja á Bakka og Jón á Skála. Myndin verður sýnd í dag og á morgun kl. 17 og í næstu viku á sama tíma frá þriðjudegi til föstudags.