Veitingastaðurinn Kanturinn stóð fyrir Kerlingahlaupi á Sjóaranum síkáta í fyrsta sinn en fyrirmyndin að þessu móti er sótt til Finnlands. Fjögur pör tóku þátt í þrautabraut þar sem karlinn bar konuna á baki og í hjólbörum. Sigurvegarar urðu Ingi Anton Jónsson og Rakel Rut Þorteinsdóttir og fengu þau vegleg verðlaun.
Að sögn Teresu Björnsdóttur á Kantinum tókst þetta fyrsta Kerlingahlaup mjög vel en dómari var kraftajötuninn Magnús Ver Magnússon.
,,Þetta verður árlegur viðburður hér eftir. Margir stóðu á kantinum og voru heitir að vera með en þorðu ekki en nú sjá allir hvað þetta er skemmtilegt og verða örugglega með á næsta ári," sagði Teresa.