Sundmót Sjóarans síkáta fór fram í sundlaug Grindavíkur á laugardaginn. Þátttaka var góð að þessu sinni en gestir komu frá 7 liðum alls staðar af landinu, meðal annars frá Reyðarfirði. Grindvíkingar unnu stakkasundið í fyrsta sinn en stakkasundsbikarinn er sá eftirsóttasti á mótinu.
Haraldur Hjálmarsson tók myndirnar á mótinu.