Fótboltamót hverfanna fjögurra á Sjóaranum síkáta fór fram á Grindavíkurvelli þriðja árið í röð. Mótið var vel sótt að vanda og fjölmörg glæsilegt tilþrif sáust. Valið var í liðin samkvæmt kúnstarinnar reglum og dómari var Gunnlaugur Hreinsson. Til úrslita léku Rauðir og Grænir og svo fór að Rauðir fóru með sigur af hólmi í hörku leik 1-0. Appelsínugulir urðu í 3. sæti og Bláir í því fjórða.
Ægir Viktorsson var kjörinn grófasti leikmaður mótsins, Gunnhildur Björgvinsdóttir átti tilþrif mótsins og verðmætasti leikmaðurinn var valinn Rúnar Sigurjónsson varnartröll hjá Rauðum.