Sjómannadagurinn var haldinn hátíðarlegur á Sjóaranum síkáta að vanda á vegum Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur. Eftir sjómannamessu í Grindavíkurkirkju voru hátíðahöld við Bryggjuna. Þar voru þrír fyrrverandi sjómenn heiðraðir fyrir að gera að sjómennsku að ævistarfi sínu, þeir Gísli Jónsson, Ólafur Ágústsson og Reynir Jóhannsson. Þá voru veitt verðlaun fyrir róðrakeppni, netaviðgerðir og fleira.
Efsta mynd: Frá heiðruninni á Sjómannadaginn. Lengst frá vinstri: Viðar Geirsson frá Sjómanna- og vélstjórafélaginu í Grindavík, Íris Ólafsdóttir, Ólafur Ágústsson heiðurshafi, Ágústa Ólafsdóttir, Margrét Brynjólfsdóttir, Gísli Jónsson heiðurshafi, Jenný Jónsdóttir, Reynir Jóhannsson heiðurshafi og Kristinn Benediktsson ritstjóri Sjómannadagsblaðsins.
Kvennasveit Vísis sem sigraði í róðrakeppninni.
Sturla GK vann róðrakeppnina þriðja árið í röð.
Appelsínugula hverfið vann róðrakeppnina.
Fisktækniskólinn sem vann róðrakeppni landsveita.
Þátttakendur í Íslandsmótinu í netaviðgerðum. Sigurvegarinn Theódór Vilbergsson er næst lengst til hægri.
Einhamar Seafood í Grindavík færði Björgunarsveitinni Þorbirni eina milljón króna í gjöf í tilefni dagsins. Á myndinni er Haukur Einarsson skipstjóri hjá Einhamri ásamt fulltrúum Þorbjarnar.