Annað árið í röð var haldin dorgveiðikeppni á Sjóaranum síkáta á sunnudagsmorgninum. Þátttaka var virkilega góð en hátt í 40 krakkar mættu ásamt foreldrum og forráðamönnum og var veiðin að þessu sinni mjög góð, a.m.k. mun betri en í fyrra. Aðallega var það ufsi sem beit á en stöku marhnútur veiddist einnig. Veitt voru nokkur verðlaun allir sem tóku þátt fengu verðlaunapening.