Vorgleðin þykir hafa heppnast með eindæmum vel þetta árið. Allt hjálpaði til, veðrið, fjölmenni gesta, margar hjálparhendur og góða skapið. Lofar góðu fyrir næstu helgi. Andlitsmálunin laðaði marga að, alltaf vinsæl. Margir tóku þátt í boccia og reyndu sig á stultum og á jafnvægisslá. Golfið laðaði að sem og hjólreiðaskoðunin. Foreldrafélagið sá um að grilla pylsur. Að öðru leyti tala myndirnar tala sínu máli.
Það voru margir sem biðu eftir árlegum knattspyrnuleik milli kennara og nemenda á elsta stigi. Búið að ganga frá námsmati og enginn dómari! Tími til kominn að taka á þessum kennurum og kannski öfugt. Allt fór vel fram og ekki spurt að úrslitum heldur skemmtanagildið metið.
Skólinn færir fjölmörgum aðilum sem lögðu hönd á plóginn og þeim fjölmörgu sem sóttu vorgleðina.