Á Sjóaranum síkáta í fyrra var í fyrsta skipti haldin dorgveiðikeppni fyrir 16 ára og yngri. Hún tókst gríðarlega vel og verður hér eftir árlegur viðburður. Dorgveiðikeppnin er skipulög af hverfunum fjórum og fer Fer fram á Miðgarði fyrir framan Ísfélagið á sunnudaginn kl. 11:00. Skráning á staðnum. Foreldrar/forráðamenn fylgi yngri börnum.
Veitt verða verðlaun fyrir mesta aflann, þyngsta fiskinn og ljótasta fiskinn. Keppnin er tvískipt; 12 ára og yngri annars vegar og hins vegar 13 - 16 ára.