Hreinsunardagar voru um helgina og voru bæjarbúar duglegir að taka til hendinni. Í dag munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvarinnar taka það drasl sem bæjarbúar settu út við lóðarmörk. Óhætt er að segja að íbúar við fjölbýlishúsið á myndinni hafi verið duglegir að taka til eins og sést á myndinni! Bærinn mun því skarta sínu fegursta á Sjóaranum síkáta.