Nýtt og glćsilegt ţjónustuhús opnađ á tjaldsvćđinu

  • Fréttir
  • 30. maí 2011

Nýja þjónustuhúsið á tjaldsvæðinu í Grindavík var opnað formlega síðasta föstudag. Þjónustuhúsið er í alla staði hið glæsilegasta og hafa tjaldsvæðisgestir í sumar lýst yfir mikilli ánægu sinni með það.

Í nóvember 2009 voru opnuð tilboð í byggingu þjónusthúss. Lægsta tilboð átti HH smíði upp á 51,8 milljónir króna en alls buðu 10 verktakar í húsið. Byggingaframkvæmdir gengu vel og skiluðu verktakar húsinu af sér í síðustu viku.

Þeir sem komu að byggingu tjaldsvæðishússins:

Arkitekt: Gunnar Páll Kristinsson, aðalhönnun.
Aðalverktaki: HH smíði ehf.
Pípulagnir: EVH verktakar ehf.
Raflagnir: HH raf. Ehf.
Málningarvinna: Málningarþjónusta Grétars.
Hellulögn: Grindverk ehf.
Frágangur á lóð í kringum húsið: GG Sigurðsson.
Expoxí í gólf: Gólflagnir Marland.
Hurðar og innréttingar: Trésmiðjan RH
Loftræstikerfi: Blikksmiðjan ÁG ehf.
Dúkur á þak: Ísþak ehf.
Golfdúkur: Dúkalagnir Guðlaugs ehf.
Flísalagnir: Jónsi múr.

Tjaldsvæðið sjálft var opnað 2009 en það sumar var gerð viðhorfskönnun meðal gesta á nýju tjaldsvæði bæjarins. Helstu niðurstöður voru að 98% gestanna voru ánægðir með tjaldsvæðið og töldu það í háum eða góðum gæðaflokki.

Um þriðjungur erlendra gesta sem dvaldi á tjaldsvæðinu var annað hvort að koma úr flugi eða á leið í flug. Um þriðjungur valdi tjaldsvæðið til að skoða sig um í Grindavík og nágrenni. Gott orðspor virtist hafa töluverð áhrif á innlenda gesti. Flestar athugasemdir við tjaldsvæðið sem gerðar voru sneru að sturtuaðstöðu og svo þvotta- og eldunaraðstöðu. Tilkoma þjónustuhússins kemur til móts við þessar athugasemdir. Stefnt er að því að gera nýja þjónustukönnun í sumar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun