Samið hefur verið um að BP Shipping sjái um smíði á 29 metra löngum ísfisktogara
fyrir útgerðarfélagið Gjögur hf. Skipið verður smíðað af undirverktökum BP Shipping
eftir teikningu og hönnun Nautic ehf. og er gert ráð fyrir því að það verði afhent
útgerðinni í janúar 2007.
Að sögn Björgvins Ólafssonar hjá BP Shipping verður farin ný leið við byggingu
þessa skips en hún er fólgin í því að stað þess að fyrirtæki hans sjái um milligöngu
við að koma smíðasamningi á, þá muni það alfarið sjá um smíðina og afhenda skipið
fullbúið með vélum og tækjum.
-- Skrokkur skipsins verður smíðaður í Póllandi og þar verður einnig lokið við
smíðina. Aðalverktaki verður Nordship í Gdynia. Vélar og tæki munum við síðan
kaupa í skipið í samráði við útgerðina, segir Björgvin í samtali við Skip.is en
hann upplýsir að nýja skipið verði svipað því sem BP Shipping samdi um smíði á
fyrir Berg-Huginn í Vestmannaeyjum en það verður afhent í nóvember 2006. Mikil
áhersla hafi verið lögð á að haga hönnun skipsins með þeim hætti að það væri hagkvæmt
í rekstri án þess að það bitnaði þó á togeiginleikum.
Smíðalýsing:
UM SKIPIÐ
Skipið er 29 metra ísfisktogari. Skrokkform skipsins hefur verið ýtarlega prófað
í tilraunatanki. Prófanir voru gerðar við tvö hleðslutilvik, þ.e.a.s. brottför
á veiðar með birgðum og komu í höfn með afla. Prófanir sýndu að skrokkform skipsins
er í alla staði mjög gott og sýndi ganghraða um 11,5 mílur við brottför á veiðar
og 11 mílur við komu til hafnar með afla.
Prófanir voru einnig gerðar á hegðun skipsins í öldum og reyndist það mjög vel.
Togátak mældist vera um 14 tonna kyrrstöðuátak og 12 tonn við þriggja mílna toghraða.
Þessar prófanir voru gerðar með skrúfu án skrúfuhrings og má því gera ráð fyrir
aukningu í togafli með skrúfuhring. Gerð er ráð fyrir að ná um 14 tonna togafli.