Þrír björgunarsveitarmenn frá Björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík fór í gærkvöldi austur á Kirkjubæjarklaustur þar sem þeir unnu í aðgerðarstjórn og að fleiri verkefnum utan stjórnstöðvar vegna eldgossins í Grímsvötnum. Eitt verkefnið var meðal annars að athuga ástandið á Þjóðvegi 1 rétt austan við Kirkjubæjarklaustur. Þar var ástandið svo slæmt að ganga þurfti á undan bílnum og finna vegstikur í öskubylnum sem gekk yfir.
Myndina tóku þeir á farsíma sinn og sýnir vel öskufallið á þessum slóðum. Mynd:www.thorbjorn.is