Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) leitar að hjúkrunarfræðingi í 80% deildarstjórastöðu við skólaheilsugæslu og ungbarnavernd við heilsugæsluna í Grindavík. Um framtíðarstarf er að ræða. Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja ríkir afbragðsgóður starfsandi og góðum hugmyndum starfsmanna er tekið fagnandi sem og nýjungum í starfsemi.
Nánari upplýsingar veitir Laufey Birgisdóttir yfirhjúkrunarfræðingur í gegnum netfangið laufey@hss.is eða í síma 8600193 eða í síma 4220750.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknir sem greina frá menntun, fyrri störfum og meðmælendum skulu berast til Laufeyjar Birgisdóttur yfirhjúkrunarfræðingi Skólavegur 6, 230 Reykjanesbæ eða með tölvupósti á netfangið laufey@hss.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní, 2011 og geta umsóknir gilt í 6 mánuði.
Öllum umsóknum verður svarað.