Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram laugardaginn 21. maí. Að þessu sinni útskrifuðust 64 nemendur; 47 stúdentar, 8 sjúkraliðar, 6 brautskráðust af starfsbraut, 5 úr verknámi, tveir luku starfsnámi og einn meistaranámi. Auk þess luku þrír skiptinemar námi sínu í skólanum. Nokkrir nemendur brautskráðust af tveimur námsbrautum. Konur voru 38 og karlar 26. Alls komu 39 úr Reykjanesbæ, 10 úr Grindavík, 5 úr Sandgerði og Garði og tveir úr Vogum. Einn kom frá Hellissandi, Ólafsvík og Vopnafirði.
Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Andri Þór Ólafsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Hanna María Kristjánsdóttir kennslustjóri flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Nýstúdentarnir Bjarki Brynjólfsson, Finnbjörn Benónýsson og Guðbjörg Guðmundsdóttir fluttu tónlist við athöfnina ásamt Högna Þorsteinssyni, kennara við Tónlistarskóla Reykjanebæjar.
Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Grindvíkingurinn Mary Sicat fékk gjöf frá Háskólanum í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum og hún fékk einnig viðurkenningar fyrir árangur sinn í frönsku og efnafræði. Rakel Eva Eiríksdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í fata- og textílgreinum og Telma Ýr Sigurðardóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í vinnustaðanámi á sjúkraliðabraut en báðar eru þær úr Grindavík.
Hér má sjá nokkrar myndir af Grindvíkingum við útskriftina um helgina. Fleiri myndir á heimasíðu FSS.