Nemendur 10. bekkja grunnskólans standa fyrir söfnun meðal bæjarbúa. Vegna þessa leitum við til ykkar eftir aðstoð. Ef þú kæri bæjarbúi átt fatnað, leikföng eða hjól sem ekki eru lengur notuð á þínu heimili, þá myndum við með gleði sækja hlutina til þín.
Ætlunin er að halda Flóamarkað á vorgleði skólans til styrktar Rauða Krossinum. 10. bekkingar munu standa að söfnuninni og markaðnum. Með þessu móti kveðja þeir skólann með mörgum góðverkum og um leið bæta fleiri góðum minningum í safnið af skólagöngunni.
Þriðjudaginn 24. maí, milli klukkan 10-12 að morgni, munu nemendur fara um bæinn og safna saman sölulegum fatnaði, leik-föngum og hjólum. Við beinum til bæjarbúa að skilja pokana/hlutina eftir fyrir utan heimilið, þar sem auðvelt verður að sækja þá.
Við ítrekum að allur ágóði rennur til Rauða krossins. Það sem ekki selst verður að sjálfsögðu gefið til RKÍ
Hjálpum 10. bekkingum að gera enn eitt góðverkið í lok skólagöngu sinnar.