Sumarnámskeiđ Grindavíkurdeildar

  • Fréttir
  • 18. maí 2011

Gleðinámskeið er ókeypis námskeið fyrir 7-9 ára börn.  Námskeiðin verða 18. - 22. júlí og 1. - 5. ágúst og haldin í Rauða kross húsinu að Hafnargötu frá mánudegi til föstudags frá kl 9:00-16:00.
Á Gleðidögum eru eldri borgarar í hlutverki leiðbeinenda. Markmið námskeiðsins er að tengja saman kynslóðirnar og miðla reynslu og þekkingu þeirra á milli.

Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg. Meðal þess sem boðið er upp á eru: leikir, prjónaskapur, tálgun, hnútabindingar, kveðskapur, söngur, ljósmyndun, skyndihjálp og vettvangsferðir.

Börn og umhverfi er námskeið fyrir ungmenni fædd 1999 eða fyrr. Námskeiðin eru 16 kennslustundir og eru haldin í Rauða kross húsinu að Hafnargötu. Staðfestingaskírteini að námskeiði loknu.
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti sem varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins.

Námskeiðsgjald er kr. 4.500,- Innifalið: Námsgögn.
1. Námskeið 20. - 23. júní
2. Námskeið 11. - 14. júlí
3. Námskeið 08. - 12. ágúst m/1. nætur útilegu.
Sækja þarf um þátttöku á námskeiðum fyrir 10. júní á grindavik@redcross.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!