Karlaliði Grindavíkur er spáð 10. sæti og sleppur þar með naumlega við fall en kvennaliði Grindavíkur er spáð falli samkvæmt spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða liðanna í Pepsideildum karla og kvenna. Strákarnir hefja leik um helgina en stelpurnar um miðjan maí. Á Stöð 2 Sport var Grindavíkurliðinu spáð 9. sæti í Pepsideild karla en flestar spár gera ráð fyrir því að Grindavík verði í fallbaráttunni í sumar.
Fyrirliðar og þjálfarar Grindavíkurliðanna gefa hins vegar lítið fyrir þessar spár og hafa sagt þeim stríð á hendur, Grindavíkurliðin ætla sér stærri hluti í sumar og treysta á stuðning bæjarbúa.
Myndin var tekin á kynningarfundi Pepsideildanna í gær:
F.v. Jón Þór þjálfari Grindavíkur, Anna Þórunn fyrirliði, Ólafur Örn þjálfari karlaliðsins og Orri Freyr fyrirliði.