Lokahóf körfuknattleiksdeildar Grindavíkur var haldið 20 apríl s.l. á Northern Light Inn. Dagskráin var hefðbundin en hófið tókst ljómandi vel að vanda. Formaður setti samkomuna og fór síðan yfir veturinn sem var að líða. Jón Gauti Dagbjartsson var veislustjóri og þá voru ýmis skemmtiatriði og verðlaunaafhendingar.
Þorleifur Ólafsson veitti verðlaun í meistaraflokki kvenna í fjarveru bróður síns Jóhanns þjálfara:
Efnilegust: Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir
Mestu framfarirnar: Berglind Anna Magnúsdóttir
Besti leikmaðurinn: Helga Hallgrímsdóttir
Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari tók síðan við og veitti verðlaun fyrir meistaraflokk karla.
Efnilegastur: Ólafur Ólafsson
Mestu framfarirnar: Ámann Vilbergsson
Mikilvægasti leikmaðurinn: Ryan Pettinella
Efsta mynd: Helga, Hjörtfríður sem tók við verðlaununum fyrir hönd dóttur sinnar Berglindar og Ingibjörg Yrsa.
Ólafur, Benóný sem tók við verðlaunum fyrir hönd Petinella og Ármann.