Ýmislegt verður um að vera í Bláa lóninu um páskahelgina og er ber hæst menningar- og sögutengda gönguferð og svo tónleika í lóninu. Dagskrá helgarinnar má sjá hér:
Laugardagurinn, 23. apríl, kl 14.00
Tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson í gervi Bogomil Font mun flytja nokkrar suðrænar Kalypsovísur
með íslenskum textum ásamt hinum ótrúlega glaðbeitta og eggjandi Davíð Þór Jónssyni á harmonikku og
bongotrommu. Grínaktug gleði og seiðandi stuð fyrir baðgesti Bláa Lónsins.
Annar í páskum, 25. apríl, kl. 13.00
Menningar- og sögutengd gönguferð. Þriggja tíma gönguferð fyrir alla fjölskylduna um nágrenni Bláa Lónsins. Möguleiki er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Mæting við bílastæði Bláa Lónsins kl. 13.00. Ekkert þátttökugjald er í gönguna.
Annar í páskum, 25. apríl, kl. 15.00 og 16.30
Vatnsleikfimi í boði Hreyfingar fyrir gesti Bláa Lónsins. 2 fyrir 1 í Bláa Lónið og maski á útibarnum
ef þú skráir þig í Vinaklúbbinn. 33% afsláttur af silica mud mask og mineral
moisturizing cream pakkningu. Nýjung! Orkugefandi handameðferðir (15 min)
3 daga gestakort í Hreyfingu og Blue Lagoon Spa í boði *
Kjörís býður börnunum upp á íspinna*
Öll börn sem borða á veitingastaðnum LAVA fá páskaegg nr 3 frá Nóa Siríus *
SPENNANDI PÁSKADAGSKRÁ TILBOÐ ALLA HELGINA
*Gildir á meðan birgðir endast
Sjá nánar hér.