Karlalið Grindavíkur í knattspyrnu er nú í æfingaferð á Oliva Nova á Spáni. Liðið fór þangað síðasta laugardag og verður í viku. Liðið æfir þar tvisvar á dag undir stjórn Ólafs Arnar Bjarnasonar þjálfara og Helga Bogasonar aðstoðarþjálfara. Aðstæður eru allar hinar bestu en nú eru aðeins rétt tæpar þrjár vikur þangað til Íslandsmótið í knattspyrnu hefst.
Á þessum sama stað eru líka lið Fylkis, ÍA og HK auk Grindavíkur. Í gær léku Grindavík og HK æfingaleik sem lyktaði með 3-0 sigri Grindavíkur. Allir leikmenn beggja liða fengu að spreyta sig. Leikið var í miklum hita og voru gerðar vatnspásur af og til í leiknum. Jamie McCunnie, Alexander Magnússon og Magnús Björgvinsson skoruðu mörk Grindavíkur. Grindvísku piltarnir báðu fyrir um bestu kveðjur heim.
Þótt æft sé stíft gera leikmennirnir sér ýmislegt til dægrastyttingar. Spurningakeppni var haldin hjá Grindavíkurliðinu í gær sem skipulögð var af nýliðunum og var spurt um fótbolta. Tvö lið urðu efstu og jöfn og má sjá sigurliðin hér á myndinni fagna sigrinum.
Efri röð: Michal, Janko, Alexander, Gunnar, Vilmundur og Guðmundur. Neðri röð: Emil, Jóhann, Einar Helgi og Ray.