Grindavíkurbær auglýsir hér með eftir leiðbeinendum til að starfa við leikjanámskeið bæjarins sumarið 2011. Starfstímabil er frá 1. júní til 29. júlí. Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum og síðast en ekki en síst
- reynslu og ánægju að því að vinna með börnum og unglingum.
Leiðbeinendur hafa umsjón með starfsemi leikjanámskeiðanna í samráði við frístunda- og menningarfulltrúa Grindavíkurbæjar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi Grindavíkurbæjar í síma 660 7322, netfang: kreim@grindavik.is
Umsækjendur fylli út umsóknareyðublað sem er að finna á heimasíðu bæjarins (Umsókn um starf hjá Grindavíkurbæ) og skili á bæjarskrifstofu Grindavíkur í síðasta lagi föstudaginn 29. apríl n.k.