|
SUÐURNES - FRÉTTIR | 8.11.2005 21:27:35 |
|
Samgönguráðherra sendir Reyknesingum hamingjuóskir
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, sendir Reyknesingum hamingjuóskir á vefsíðu
sinni nú í kvöld með hagstæð tilboð í tvöföldun Reykjanesbrautar. Þar lýsir Sturla
ánægju með þau tilboð sem bárust og vonast til að þessi hluti tvöföldunarinnar
gangi jafn vel og sá fyrri. Þá segir Sturla: ? Það er ástæða til að fagna þessum
hagstæðu tilboðum því að nú sjái menn fram á að þessari mikilvægu umferðaröryggisframkvæmd
verði lokið?.
Pistill Sturlu er svohljóðandi: ?Að öllu jöfnu er ég ekki viðstaddur opnun tilboða
í verk sem Vegagerðin hefur boðið út, en í dag var ég viðstaddur opnun tilboða
í tvöföldun Reykjanesbrautar.
Það er ánægjulegt frá því að segja að mjög hagstæð tilboð bárust í verkið. Það
lægsta var frá Jarðvélum ehf. og hljóðaði upp rúmar 1.175 milljónir sem eru rúm
75% af kostnaðaráætlun, næst lægsta tilboðið barst frá Háfelli ehf.
Það er ástæða til að fagna þessum hagstæðu tilboðum því að nú sjái menn fram
á að þessari mikilvægu umferðaröryggisframkvæmd verði lokið.
Ég óska Reyknesingum og öllum þeim sem um brautina fara til hamingju og vona
að þessi hluti tvöföldunarinnar gangi jafn vel og sá fyrri?.
Myndin: Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra tekur fyrstu skóflustunguna 11. janúar
2003. .
| |