Útibú SpKef í Grindavík sem Landsbankinn tók yfir fyrir skömmu í verslunarmiðstöðinni í Grindavík var lokað síðasta þriðjudag en myndin að ofan var tekin rétt fyrir lokun og sýnir síðustu viðskiptavinina sinna sínum erindum. Þrír starfsmenn SpKef hófu svo störf á miðvikudaginn í sameiginlegu útibúi Landsbankans í Grindavík en Helgi Bogason, sem var útibússtjóri SpKef í Grindavík, flyst í höfuðstöðvar Landsbankans í Reykjavík.
Neðri myndin var tekin í Landsbankanum á miðvikudaginn eftir að búið var að sameina útibúin og var þar nóg um að vera. Útibússtjóri Landsbankans í Grindavík er sem fyrr Valdimar Einarsson.