Undirbúningur fyrir Sjóarann síkáta er í fullum gangi og mynd að komast á dagskrána. Athygli er vakin á því að þeir sem vilja koma einhverju á framfæri í dagskrána á Sjóaranum síkáta eru beðnir að senda tölvupóst á sjoarinnsikati@grindavik.is, í allra síðasta lagi 10. maí nk. en þá er stefnt að því að hafa dagskrána tilbúna. Þá hafa verið ákveðnir eftirfarandi undirbúningsfundir:
Dags | Dagur | Klukkan | Boðaðir |
19. apríl | Þriðjudagur | 11:00 | Lögreglan og Björgunarsveitin Þorbjörn |
3. maí | Þriðjudagur | 14:00 | Forstöðumenn stofnana, SVG, slökkvilið, Þórkatla, Grindjánar |
4. maí | Miðvikudagur | 20:00 | Þjónustuaðilar (verslun og þjónusta) |
4. maí | Miðvikudagur | 20:45 | Liðsstjórar hverfanna |
19. maí | Fimmtudagur | 14:00 | Lögregla, björgunarsveit, forstöðumenn, SVG, slökkvilið liðsstjórar |
Fundirnir fara fram á bæjarskrifstofunum.
Hverfin fjögur eru beðin um að tilnefna hvert sinn liðsstjóra sem mun hafa yfirumsjón með ýmsum þáttum eins og skipulagningu á göngunni á föstudagskvöldið, liðsskipan í fótboltamótið og ýmislegt fleira. Vinsamlegast látið vita í síðasta lagi 2. maí nk. um hver liðsstjórinn er.