Sem kunnugt er hefur HS Orka hefur samþykkt að láta Saltfisksetrinu í té jarðsögusýninguna Gjána sem nú var í Eldborg. Búið er að flytja sýninguna á efri hæð Salfisksetursins og unnið að því að koma henni upp. Nú stendur yfir nafna nafnasamkeppni á vegum Saltfisksetursins sem stendur til 9. apríl. Annars vegar til að finna nýtt nafn á jarðsögusýninguna Gjána og hins vegar til að finna nýtt nafn á húsið sjálft. Sýningin Saltfisksetur Íslands heldur að sjálfsögðu sínu nafni og verður hluti af þessu nýja auðlindahúsi Grindvíkinga.
Að mati stjórnar ætti nafn hússins að hafa skírskotun til sjávar, jarðfræði og menningar.
Mikilvægt er að nafnið sé þjált og grípandi, bæði á íslensku og ensku.
Tillögur skal senda á netfangið heimasidan@grindavik.is í síðasta lagi 9. apríl og þar komi fram:
1. Tillaga um nafn á jarðsögusýninguna.
2. Tillaga um nafn á húsið.
Nafn og símanúmer þess sem leggur fram tillöguna.
Vinningar:
1. Út að borða fyrir 2 á Salthúsinu.
2. Fjórhjólaferð með Fjórhjólaævintýri.
Gjáin í Eldborg
Sýning Hitaveitu Suðurnesja um jarðfræði, jarðhita og vinnslu orku úr iðrum jarðar við orkuverið í Svartsengi var opnuð 27. nóvember 1999 og er glæsileg í alla staði. Hins vegar þurfti að loka henni nokkrum misserum síðar vegna brennisteinsmengunar sem fór illa með tölvubúnað. Sýningin heldur svo sannarlega gildi sínu en hún er jafnt fyrir fræðimenn og leikmenn sem vilja kynna sér jarðsöguna í gegnum jarðfræði Íslands og þá sérstaklega jarðfræðina í Svartsengi.