Helga Bryndís Magnúsdóttir tók til starfa sem organisti við Grindavíkurkirkju í ársbyrjun. Hún var áður starfandi organisti og kórstjóri við Möðruvallakirkju í Hörgárdal og við kirkjurnar þar í kring og einnig í kirkjunum í Svarfaðardal og var stjórnandi Samkórs Svarfdæla. Hún starfaði einnig við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.
,,Hörður Áskelsson söngmálastjóri þjóðkirkjunnar sagði mér frá því að hér myndi vanta organista. Þegar ég sá starfið auglýst hafði ég samband við Tómas Guðna sem starfaði hér og hann hafði allt gott um staðinn og samstarfsfólkið að segja svo ég ákvað að sækja um," segir Helga Bryndís.
Hún hefur lokið Kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar en hennar aðalmenntun og starf hefur verið píanóleikur. Hún stefnir á að klára Kantorspróf við Tónskóla Þjóðkirkjunnar á næstu misserum.
Helga Bryndís er full tilhlökkunar að takast á við verkefnin fram undan. ,,Áherslur og framtíðarplön mótast með fólkinu í kirkjunni og þeim sem ég starfa með í kórnum eftir því sem ég kynnist þeim, bæði sönglega séð og hvar áhuginn þeirra liggur. Það er hæpið að koma með of fyrirfram mótaðar hugmyndir, þegar maður veit ekki alveg hvað maður hefur í höndunum. Sjálfri finnst mér mikilvægt að hafa gaman og auðvitað líka að stefna alltaf að því að gera betur og taka framförum."
Nokkur skortur hefur verið á karlaröddum í kirkjukórnum undanfarin misseri.
,,Fyrir norðan voru kórarnir mínir mjög vel ,,karlmannaðir" svo ég þekkti ekki þetta vandamál fyrr en núna. Við þurfum fleiri karlmenn í kórinn og ég er hissa á því, þar sem konurnar í kórnum eru allar hver annarri sætari og skemmtilegri. Hvað eru karlmenn í Grindavík að gera á kvöldin sem er skemmtilegra en að syngja með góðu fólki?" spyr Helga Bryndís.
Hún stendur fyrir tónleikum í kirkjunni í menningarvikunni sem bera yfirskrifttina Dýrin mín stór og smá. Meðflytjendur eru Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran og kór Grindavíkurkirkju.
Dagskrá tónleikanna er helguð dýralögum. Sigríður og Helga Bryndís eru báðar miklir dýra-og náttúruvinir og hafa mikinn áhuga á hestum og hundum. Dýr eru oft viðfangsefni tónsmiða bæði erlendis og á Íslandi og eru þessi lög oft fjörug og skemmtileg. Þeim þótti tilvalið að smella saman uppáhalds dýralögunum sínum og meðal frægra laga sem heyrast á þessum tónleikum eru; Spjallað við spóa, Kisa mín, Sprettur, Snati minn, Fuglinn í fjörunni, Hreiðrið mitt o.fl. falleg lög.
Orgelið í Grindavíkurkirkju er nýtt af nálinni sem Helga Bryndís er ánægð með. ,,Þetta er frábært orgel sem hæfir vel kirkjunni. Það var líka nýtt Björgvinsorgel í Möðruvallakirkju þar sem ég starfaði áður, en miklu minna, svo það er mjög gaman að fara yfir á stærri ,,græju".
Mynd: Sigríður og Helga Bryndís.