Grindavík sigraði Hauka í Lengjubikar karla í knattspyrnu í gærkvöldi á Ásvöllum með einu marki gegn engu. Óli Baldur Bjarnason skoraði sigurmarkið á 65. mínútu með sinni fyrstu snertingu eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Leikurinn fór fram við erfiðar aðstæður því rok og rigning gerði leikmönnum erfitt fyrir.
Grindavík er í 2. sæti C-riðils með 12 stig, liðið hefur unnið fjóra leiki en tapað tveimur. Síðasti leikur liðsins í riðlinum er gegn Fylki annað kvöld kl. 19 á gervigrasvelli Fylkis í Árbæ.
Lið Grindavíkur: Óskar - Matthías, Jamie, Ólafur Örn, Alexander - Jóhann, McShane, Salem - Magnús, Michel, Scotty. Inn á komu Guðmundur Bjarna, Óli Baldur, Guðmundur Egill og Hákon.
Kvennalið Grindavíkur tapaði fyrir FH síðasta sunnudag í Lengjubikarnum 3-0. Grindavík hefur tapað báðum leikjunum í Lengjubikarnum. Næstu leikur stelpnanna er 10. apríl gegn ÍBV á Leiknisvelli kl. 14.