Vorönnin er tími árshátíða. 6. og 7. bekkir Grunnskólans héldu sína árshátíð 29. mars og var mikið lagt í. Hver bekkur kom með sitt framlag og fjölmargir gestir skemmtu sér í salnum. Á milli atriða voru flutt tónlistaratriði frá nemendum Tónlistarskólans í Grindavík.
Ýmis atriði voru í boði s.s. tískusýningar, söngkeppnir, leikrit og Júróvision. Allt fór vel að lokum og gestir skemmtu sér hið besta. Í hléi sáu foreldrar nemenda í 6. bekk um veitingar til söfnunar fyrir Reykjaferð sem tilvonandi 7. bekkur stefnir á að fara með haustinu.
Þá er aðeins ein árshátíð eftir, 8.-10. bekkja, sem verður haldin á sal skólans þann 5. apríl næstkomandi.