Athygli er vakin á því að Lögreglan á Suðurnesjum hefur sett upp sérstakt netfang í Grindavík fyrir ábendingar frá bæjarbúum. Netfangið er grindavik@dc.is. Þá hefur verið settur upp hnappur á heimasíðu Grindavíkurbæjar, neðarlega til vinstri á forsíðunni, og með því að smella á hann fást nánari upplýsingar.
Hægt er að koma með ábendingar til lögreglu t.d. um hraðakstur, kvartanir og ýmislegt fleira.
Hægt er að hafa samband við lögregluna með því að senda tölvupóst á netfangið grindavik@dc.is
eða hringja í:
Neyðarnúmerið 112 eða
Upplýsingasíma Lögreglunnar á Suðurnesjum 420-1700.
Hafi íbúar upplýsingar varðandi fíkniefni eru þeir hvattir til að koma þeim á framfæri við lögreglu. Fullrar nafnleyndar er heitið.
Upplýsingasíminn 800 5005 og netfangið info@rls.is eru samvinnuverkefni lögreglu og tollgæslu og liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Talhólfið og netfangið eru vöktuð allan sólarhringinn sem tryggir að upplýsingarnar berast fljótt og vel til viðkomandi lögregluembætta.
Þegar hringt er í fíkniefnasímann svarar talhólf. Þar getur þú lesið inn þær upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri við lögreglu. Hægt er að gefa upplýsingarnar upp nafnlaust. Ef lögreglu er heimilt að hafa samband eða þú óskar þess þarf að taka það fram og gefa upplýsingar um nafn, símanúmer eða netfang.
Fíkniefnasíminn gjaldfrjálst númer 800 5005: