Kvennaráð körfuboltans vill koma á framfæri þakklæti til allra styrktaraðila vegna konukvöldsins í Eldborg 25. mars sl. ásamt þakklæti til þeirra kvenna sem sáu sér fært að mæta og styrkja gott málefni. Þetta var sannarlega frábært kvöld.
Ýmislegt var til gamans gert en veislustjóri var Siggi Hlö. Röddin 2010, Arney Sigurbjörnsdóttir tók lagið, kona kvöldsins var valin og þá var skartgripasýning og tískusýning. Hér eru nokkrar myndir frá konukvöldinu.