Unniđ ađ Umferđaröryggisáćtlun

  • Fréttir
  • 29. mars 2011

Öryggi gangandi vegfarenda, sérstaklega skólabarna sem fara gangandi í Hópsskóla vestan Grindavíkurvegar, mun aukast til mikilla muna fyrir næsta skólaár að því er fram kemur í Járngerði í dag. Nú stendur yfir undirbúningur á vegum tæknideildar þar sem settar verða þveranir og gangbrautir (með miðeyju) á Grindavíkurveg, nálægt gatnamótum Hópsbrautar og Suður-hópsbrautar.

Jafnframt verða settir nýir stígar við Kúadal fyrir gangandi vegfarendur sem leiða að gangbrautunum en góðar ábendingar komu fram á fundi nemenda Hópsskóla með bæjarstjóra þar sem krakkarnir voru spurðir út í gönguleiðir þeirra í skólann. Auk þess verður sett bæjarhlið við innkomuna í bæinn á Grindavíkurveginum, skammt sunnan við Nesveg. Einnig verður sett svipað hlið á Austurveg.

Þessi vinna er í samræmi við Umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar.

Gangbraut með miðeyju.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir