Einn af hápunktum menningarvikunnar eru tónleikar í Grindavíkurkirkju sunnudaginn 3. apríl þegar Kristján Jóhannsson óperusöngvari tekur þar lagið ásamt Rósalind Gísladóttur mezzósópran og kennara við Tónlistarskóla Grindavíkur og Antoni Sigurðssyni sem er ungur og upprennandi óperusöngvari sem Kristján hefur verið að kenna. Kristján og Anton hafa áður sungið saman en þetta er í fyrsta skipti sem þessi þrjú stíga saman á svið.
Þau eru í raun ekki í formlegu samstarfi en að sögn Rósalindar verða tónleikarnir mjög fjölbreyttir og vonandi mjög skemmtilegir, þau verða t. d. með íslensk og ítölsk sönglög, lög úr söngleikjum og aríur.
Kristján Jóhannsson hefur skapað sér sess sem einn allra fremsti dramatíski tenór okkar tíma. Kristján, sem kominn er af mikilli tónlistarfjölskyldu, hóf söngnám um tvítugt við Tónlistarskóla Akureyrar hjá Sigurði Demetz. Hann fór síðan til Ítalíu til frekara náms í Conservatorio Nicolini í Piacenza hjá Gianni Poggi. Hann sótti síðar einkatíma hjá þekkt-um listamönnum, eins og raddþjálfaranum Ettore Campogalliani og tenórnum Feruccio Tagiliavini og tileinkaði sér þar hinn sanna ítalska söngstíl.
Kristján þreytti frumraun sína á óperu-sviðinu árið 1980 í Osimo Teatro Piccola í Feneyjum í óperunum Il Tabarro og Gianni Schicci eftir Puccini og vakti fljótlega athygli stærri óperuhúsa í Bretlandi og Ítalíu. Kristján hefur sungið öll helstu hlutverk ítölsku óperubókmenntanna og eru hlutverkin orðin á fimmta tug. Hann hefur sungið í öllum helstu óperuhúsum heims, eins og Metropolitan-óperunni, Lyric Opera í Chicago, Baltimore-óperunni, Teatro alla Scala, Teatro dell Opera Roma, Maggio Musicale í Flórens, Teatro San Carlo í Napoli, ríkisóperunni í Vín, konunglegu óperunni í Covent Garden, Arena di Verona, Carnegie Hall í New York, nýju þjóðaróperunni í Peking, í München, Berlín, Hamborg, Frankfurt, Seúl, Tókyó, Zürick, Bologna, París, Tel Aviv, Varsjá og Zagreb.
Kristján söng í fyrsta skipti við Íslensku óperuna haustið 2008, þegar hann söng aðaltenórhlutverkin í Cavalleria Rusticana og Pagliacci.
,,Það er náttúrulega bara frábært tækifæri að fá að koma fram á sömu tónleikum og Kristján Jóhannsson, enda einn af okkar fremstu óperusöngvurum," segir Rósalind full tilhlökkunar.
Rósalind lauk 8. stigi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1999 undir leiðsögn Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og hélt síðan til framhaldsnáms á Spáni þar sem kennarar hennar voru Crisina Carlin og Maria Dolors Aldea. Hún hefur einnig sótt masterklassa og söngtíma hjá Martin Isepp, Miquel Zanetti, Donald Kaash, Robin Stapleton og Janet Williams. Rósalind hefur sungið með ýmsum kórum, m.a. kór Íslensku óperunnar í konsertuppfærslu á Otello.
Hún söng m.a. Sylvane í Kátu ekkjunni eftir Franz Lehár í uppsetningu Íslensku óper-unnar, titilhlutverkið í Carmen með Sumaróperunni haustið 2003, prins Orlofsky í Leðurblökunni, aðra dömu í Töfraflautunni, var með einsöng í Stabat Mater eftir Pergolesi og hefur auk þess haldið fjölda tónleika bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur stjórnað gospelkór Árbæjarkirkju og barnakórum. Rósalind starfar nú sem söngkennari í tónlist-arskólanum í Grindavík og syngur með sönghópnum Orfeus og söngkvartettinum Opus.
,,Það er heilmikið um að vera hjá mér þessa dagana," segir Rósalind. ,,Auk tónleikanna í Grindavíkurkirkju söng ég á hádegistónleikum í Íslensku Óperunni með nokkrum frábærum söngvurum í tónleikaröðinni ungir einsöngvarar, gestasöngvari á þeim tónleikum var Garðar Thór Cortes. Eins mun Óp-hópurinn halda til Reykjanesbæjar í maí og halda þar alíslenska tónleika, auðvitað í leikrænum búningi. Einnig verðum við í Óp-hópnum með tónleika í Salnum í Kópavogi þann sama mánuð. Eins erum við Valgerður Guðrún Guðnadóttir að vinna að tónleikum sem við ætlum að halda saman í byrjun júní."