Hárgreiðslustofan Betra hár opnaði í verslunarmiðstöðinni í gær. Í tilefni dagsins var opið fram eftir kvöldi í verslunarmiðstöðinni og ýmislegt um að vera og tilboð í Betra hári, Lyfju, Bókabúðinni og Palómu. Betra hár er öll hin glæsilegasta en þar starfa þær Sara Símonardóttir, Edith Þóra Pétursdóttir og Rósa Kristín Bjarnadóttir. Margt var um manninn við opnunina en stofan er til húsa á neðstu hæðinni þar sem félags- og skólaskrifstofa bæjarins var.