Menningarvika Grindavíkur verður 2.-9. apríl nk. Henni verður þjófstartað föstudaginn 1. apríl með Kútmagakvöldi Lions. Formleg setning hátíðarinnar verður í Grindavíkurkirkju laugardaginn 2. apríl þar sem verða ýmis tónlistaratriði og jafnframt verða afhent menningarverðlaun 2011. Í kjölfarið tekur við hver viðburðurinn á fætur öðrum í menningarviku þar sem uppistaðan er framlag heimafólks auk þess sem fjöldi landsþekktra tónlistarmanna og rithöfunda heimsækja Grindavík í menningarvikunni.
Menningarvikunni hefur verið vel tekið undanfarin tvö ár. Allir leggjast á eitt við að bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Tónleikar, skemmtanir, frásagnir, sýningar og uppákomur verða alla dagana á bókasafninu, Bryggjunni, Salthúsinu, Aðal-braut, Kantinum, íþróttahúsinu, Kvennó, Víðihlíð, sundlauginni, Grindavíkurkirkju, leikskólunum, grunnskólunum, listastofum, Landsbankanum, verslunarmiðstöðinni, Aþenu og handverksfélaginu Greip.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að nýta sér tækifærið og fjölmenna á menningarviðburðina. Menningarvikan er skipulögð af Kristni Reimarssyni, frístunda- og menningarfulltrúa.
Dagskráin birtist í Járngerði sem kemur út í næstu viku en einstakir viðburðir verða kynntir hér á heimasíðunni næstu dag.