Tölvuþjónusta Benna hefur tekið að sér umboð fyrir Vodafone í Grindavík og veitir ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu okkar. Auk þess veitir Tölvuþjónusta Benna almenna tölvuþjónustu og selur síma, prentarahylki og ýmislegt fleira.
Að sögn Benna er Vodafone m.a. að vinna í því að taka út afruglara fyrir 365 og býður nú upp á nýja sjónvarpsþjónustu í gegnum netið. ,,Með sjónvarpsþjónustu okkar færðu aðgang að Leigunni. Þar er í boði fjölbreytt úrval kvikmynda og þátta sem þú horfir á þegar þér hentar. Mikið úrval af barnaefni á 0 kr. Ef þú ert áskrifandi að Stöð 2 og/eða Skjá 1, getur þú horft á valda þætti þegar þér hentar," segir Benni.
Nánari upplýsingar eru á http://www.vodafone.is/gull/grindavik