Hið eina sanna Styrktarkvöld körfuknattleiksdeildar kvenna verður haldið föstudaginn 25. mars í Eldborg. Húsið opnar kl 19.30 með fordrykk. Í fyrra komust færri að en vildu svo það er best að tryggja sér miða í tíma. Forsala aðgöngumiða er hafin í PALÓMA. Miðaverð er aðeins kr 5.900.-
Dagskrá:
Veislustjóri og DJ kvöldsins er enginn annar en Siggi Hlö.
Hinn eini sanni Helgi Björns mun taka lagið.
Röddin 2010, Arney Sigurbjörnsdóttir kemur og syngur.
Sign skartgripakynning, þú færð skartgripina í Palóma.
Gyðja kynnir nýja ilminn sinn „Eyjafjallajökull".
HS design mun sýna sína nýjustu línu.
Ison kynnir nýjar hárvörur sem slegið hafa í gegn, þú færð vörunar á Hárhorninu.
Landsliðskokkarnir frá Bláa lóninu töfra fram dýrindis máltíð ásamt eftirrétti.
Óvænt atriði.
Valin verður kona kvöldsins og fær hún að gjöf skartgrip frá Sign.
Happdrætti, frábærir vinningar.
Ball verður í Salthúsinu hjá Láka að loknu konukvöldi.