Mottu-mars er yfirskrift mánaðarlangs átaks Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein sem hófst formlega 1. mars þegar úrvalslið allra helstu sérsambanda landsins í boltaíþróttum skoruðu á hvert annað í mottukeppni - söfnun yfirvaraskeggs. Í Grindavík eru aðeins skráð þrjú lið til leiks. Áhöfnin á Gísla Súrssyni lætur ekki sitt eftir liggja en hún hefur safnað hvorki meira né minna en 131.000 kr.
Meirihluta karlmanna á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar eru líka með í mottumars en hafa reyndar aðeins safnað 4.000 kr. og er hér með skorað á bæjarbúa að heita á þessa myndarlegu menn. Þá eru karlarnir í Bláa lóninu líka með í mottumars og hafa safnað 11.000 kr. í áheitum.
Öllum ágóða af söfnunarstarfi átaksins varið til rannsókna, fræðslu, ráðgjafar og stuðnings við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra.
Í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu segir að þetta sé í þriðja sinn sem staðið er fyrir sérstöku átaki um karlmenn og krabbamein og verður það jafnframt eitt umfangsmesta árvekniátak félagsins til þessa.