Sara skrifar undir samning - Markó lánađur

  • Fréttir
  • 21. mars 2011

Hin efnilega Sara Hrund Helgadóttir leikmaður Grindavíkur hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið. Þetta eru góð tíðindi fyrir Grindavíkurliðið enda kvarnast nokkuð úr leikmannahópnum frá síðustu leiktíð. Leitað er að frekari liðsstyrk.

Marko Valdimar Stefánsson, varnarmaður Grindvíkinga, hefur gengið til liðs við sænska félagið Oskarshamns AIK á láni fram á haust.

Oskarshamns AIK leikur í þriðju deildinni í Svíþjóð, sem er fimmta efsta deild, og stefnir á að komast upp í ár.

Marko, sem er tvítugur, hefur leikið nítján deildar og bikarleiki með meistaraflokki Grindavíkur síðan hann steig sín fyrstu skref með liðinu árið 2008.

Marko var einnig á láni hjá Njarðvík í fyrstu deildinni hluta tímabils 2008 sem og í fyrra.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál