Ókeypis á öll söfn á Suđurnesjum um helgina

  • Fréttir
  • 11. mars 2011

Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í þriðja sinn upp á sameiginlega dagskrá helgina 12. - 13. mars n.k. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni og fjölbreytt dagskrá. Auk þess eru ýmis gallerí opin þar sem handverk og listmunir eru til sýnis. Athygli er vakin á því að ókeypis er inn á öll söfnin og þá dagskrá sem er í boði.

Fulltrúar allra sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Menningarráði Suðurnesja auk framlags sveitarfélaganna sjálfra.

Dagskrá safnahelgarinnar má sjá hér. Í henni kennir ýmissa grasa. Tónleikar, sýningar, fyrirlestrar og margs konar uppákomur. Listasmiðja fyrir börn, Raggi Bjarna syngur sjómannalög auk þess sem haldin verður uppskriftarkeppni á saltfiskréttum, rokk og ról og harmonikkutónlist. Skessan í hellinum, Heimskautin heilla og Sköpun alheimsins svo fátt eitt sé nefnt. Í boði er sem sagt mjög fjölbreytt menningardagskrá og ókeypis afþreying fyrir alla fjölskylduna.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir