Á öskudag, miðvikudaginn 9. mars, verður grímuball í Félagsmiðstöðinni Þrumunni, Víkurbraut 21. Annars vegar frá kl. 17:00 - 18:30 fyrir krakka í 1. - 4. bekk. Hins vegar frá kl. 18:30 - 20:00 verður grímuball fyrir krakka í 5. - 7. bekk. Dans, leikir og kötturinn sleginn úr tunnunni! Leyfilegt að koma með smá nammi og gos með sér. Allir velkomnir.